top of page
IMG_5485 3.HEIC

Helgafell 2025

Helgafellshópur Fjallafjörs hentar byrjendum og lengra komnum í nýrri og klassískri dagskrá starfsárið 2025. Tuttugu ferðir eru á dagskrá, 10 kvöldferðir og 10 dagsferðir og eru allar ferðirnar að mati fararstjóra "klassískar". Hægt er að skipta greiðslum án kostnaðar og athugið að sum stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til þátttöku í starfi Fjallafjörs.Rík áhersla er lögð á liðsheild, samheldni, kærleika og gleði í öllum ferðum Fjallafjörs.

 

VERÐ AÐEINS: 59.900

Dagskrá Helgafells

Dagskrá Helgafellshópsins 2025

Þó dagskráin sé samsett úr klassískum ferðum er hún í senn fjölbreytt og spennandi og ætti að heilla bæði byrjendur og lengra komna.  Gráðun ferðanna er á erfiðleikastigi 1-2 og er mjög vítt á þeim kvarða. Því má segja að hópurinn henti þeim sem geta hreyft sig með góðu móti og tekist á við fjölbreyttar gönguleiðir á fjöllum.  Óskir þú eftir nánari upplýsingum um Helgafellshópinn hvetjum við þig til þess að senda okkur línu á fjallafjor@fjallafjor.is.​ Birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Dagskrá getur tekið breytingum m.t.t. veðurs, utanaðkomandi þátta og óviðráðanlegra aðstæðna.

Með skráningu samþykkja þátttakendur skilmála Fjallafjörs sem nálgast má hér.

Verð: 59.900

Hvað er innifalið?

-Fararstjórn

-Undirbúningsfundur

Undirbúningsfundur

Allir hópar Fjallafjörs hefjast með undirbúningsfundi þar sem farið er yfir öryggismál, fatnað, búnað, næringu, fyrirkomulag dagskrárinnar og ferðanna sem og ýmis praktísk atriði.

Facebookhópur

Fjallafjör notar Facebookhópa til þess að bjóða í ferðir, á viðburði, miðla upplýsingum og þess háttar. Við hvetjum þátttakendur til þess að deila myndum og minningum úr ferðum í hópunum.

afslættir

Þátttakendur í Fjallafjöri fá afslætti hjá ýmsum verslunum. Skoðaðu afsláttarkjörin, sæktu þátttakendaskírteini í símann þinn og njóttu betri kjara.

Fararstjórar Hekluhópsins

Guðmundur S.
Auður Jóhanns_edited.jpg
bottom of page