top of page
Fjölskyldufyrirtækið
Hugsjón
Fjallafjör er í eigu Hugsjónar ehf. - fjölskyldufyrirtækis
Guðmundar Arnar Sverrissonar og Kristeyjar Brietar Gísladóttur.
Tilgangur?
Tilgangur Hugsjónar ehf. er að skapa heilbrigðan grundvöll fyrir kærleiksríka og gleðiríka samveru í náttúru Íslands þar sem áhersla er lögð á öryggi, kærleika, liðsheild, gleði, samheldni og vináttu.
Hver erum við?
Við erum átta manna stórfjölskylda sem búum í Grindavík, elskum náttúruna, Ísland og samveru með vinum og fjölskyldu (guttinn í bumbunni á myndinni er kominn út!). Að sameina þetta allt í ferðum Fjallafjörs er eitt það besta sem við getum hugsað okkur og við erum ákaflega þakklát fyrir að fá tækifæri til þess að starfa með þátttakendum í hópunum okkar.
bottom of page